Velja hest:
select
  

Fréttir

Hér er að finna allar fréttir sem eigendur/umsjónaraðilar stóðhesta hafa lesið inn á vefinn.  Fréttirnar birtast í tímaröð.

2/19/2012 2:33:15 PM IS2008166640 Stuðlar frá Húsavík

Stuðlar frá Húsavík í reið

Hér eru fyrstu myndir af Stuðlari frá Húsavík í reið. Hann er allur að koma til og farinn að tölta vel á köflum. Er hann töluvert líkur móður sinni í framgöngu.


1/5/2012 5:58:51 AM IS2003187057 Álmur frá Skjálg

Álmur frá Skjálg

Álmur frá Skjálg er til leigu næsta sumar, allar nánari upplýsingar í síma 8676688 (Gunnar) og 8491240 (Gulla) Álmur var í 2. sæti á Landsmóti 2011 í A-flokki gæðinga. Síðustu tvö ár (2010 og 2011) var hann efstur á Gæðingamóti Sleipnis og hlaut þar Sleipnisskjöldin eftirsóttaverða. Álmur hefur hlotið í kynbótadómi 8,61 fyrir hæfileika þar af 9,5 fyrir skeið og 8,5 fyrir tölt og hægt tölt. Flottur alhliða gæðingur, með frábært geðsslag.


12/14/2011 1:41:02 PM IS2006165288 Bergsteinn frá Akureyri

Þjálfun

Bergsteinn er kominn á hús og er blíður og ljúfur eins og hans er von og vísa. Stefanía Árdís Árnadóttir hefur tekið að sér að þjálfa hann í vetur. Hlökkum til að sjá hvernig þróunin og þroskinn heldur áfram að koma fram.


11/30/2011 3:29:15 AM IS2007164002 Dalur frá Hólakoti

Er seldur.

Dalur hefur nú verið seldur og er komin til nýrra eigenda í Þýskalandi. Við óskum þeim og honum velfarnaðar í framtíðinni.


11/9/2011 4:55:29 AM IS2008187722 Gáll frá Dalbæ

Gáll kom heim úr tamningu 2. nóv. Fer nú í frí fram að áramótum.

Gáll er búinn að vera hjá Óla Andra í einn og hálfan mánuð. Hann fer vel á stað, sallarólegur á sínu brokki. Hann er með góða stefnu hvort sem honum er riðið einum eða með öðrum. Óli er búinn að mýkja hann í hliðunum, kenna honum að "krossa aftan og framan" er fljótur að læra og jákvæður.


11/9/2011 12:46:28 AM IS2007164002 Dalur frá Hólakoti

Myndband af Dal og Auði Karen 6 ára komið inn á síðuna okkar :)


11/2/2011 5:10:04 AM IS2008186693 Hrannar frá Skeiðvöllum

Myndir af Hrannari í reið

Núna er hann Hrannar búin að vera inni í 3 vikur í tamningu og gengur rosa vel, hann er mjög þægur og rólegur. Það verður spennandi að fylgjast með honum í framtíðinni.


10/18/2011 4:02:24 AM IS2007135606 Ægir frá Efri-Hrepp

2 nýjar myndir af Ægir frá Efri-Hrepp á Landsmótinu 2011


10/17/2011 12:47:16 PM IS2006137316 Magni frá Hellnafelli

2 nýjar myndir af Magni á Landsmótinu 2011

Magni frá Hellnafelli fylgti systkinum sínum í afkvæmahóp Gígjari frá Auðholtshjáleigu á Landsmót þessar myndir voru teknar þar af okkkur ;o)


10/17/2011 2:06:04 AM IS2004182653 Heiðar frá Austurkoti

Heiðar frá Austurkoti

Heiðar frá Austurkoti er tilbúinn fimmgangshestur ,heiðar er glæsilegur í útliti með mikla útgeislun. Heiðar getur hentað hvort sem er í íþróttakeppni sem og gæðingakeppni