 |
Hrossarækt.is gefur út bókina Stóðhestar 2012 í lok mars, í tengslum við Stóðhestaveislur Hrossaræktar sem verða aftur haldnar bæði norðanlands og sunnan.
Stóðhestabók síðasta árs, Stóðhestar 2011, naut mikilla vinsælda, enda stærsta rit sinnar tegundar með upplýsingum um 184 úrvals stóðhesta á Íslandi. Árið í ár verður engin undartekning á þessu, enda hafa nú þegar margir af bestu og vinsælustu stóðhestum landsins staðfest skráningu í bókinni. Hvar verður þinn stóðhestur?
Allir skráðir stóðhestar fá:
|
- Heilsíðu í bókinni Stóðhestar 2012 með öllum helstu upplýsingum um hestinn og notkun á honum. Bókinni verður dreift frítt til allra gesta á Stóðhestaveislum Hrossaræktar í vor, auk þess að vera til sölu í öllum helstu hestavöruverslunum og víðar.
- Aðgang í 12 mánuði að stærsta íslenska stóðhestavefnum undir sólinni, stodhestar.com. Þar gefst eigendum stóðhesta jafnframt tækifæri til að setja inn nýjar fréttir, myndir og myndbönd af sínum stóðhesti og haga þar með markaðssetningunni eftir eigin höfði.
- NÝTT! – Aðgang í 12 mánuði að stóðhesta-appi isibless og Hrossaræktar. Nú er hægt að fá allar helstu upplýsingar um stóðhestana beint í símann eða ipad-lófatölvuna. Enn ein nýjungin sem aðeins Hrossarækt.is býður upp á.
| Til að skrá stóðhestinn þinn hjá Hrossarækt.is, þarftu aðeins að fylla út formið hér fyrir neðan. Að auki þarftu að hlaða inn mynd af hestinum í forminu hér að neðan eða senda hana til okkar í tölvupósti á netfangið stodhestar@hrossaraekt.is.
Hægt er að velja um tvenns konar skráningu: -
- Skrá stóðhest aðeins á vef og í app (12 mánaða tímabil): 15.000 kr. + vsk.
-
- Skrá stóðhest á vef, í app + heilsíðuauglýsingu í blaði: 45.000 kr. + vsk.
Vinsamlega athugaðu að það getur tekið allt að 72 klst. að fullskrá hestinn inn í kerfið hjá okkur. Þegar allt er klárt sendum við þér tölvupóst með lykilorði sem þú getur svo notað til að komast inn á þína síðu.
|
|